Jólahátíð í Trondheim

Jólahátíð í Trondheim

Gamle Oslovei 21, 7020 Trondheim, Norge, , 7020 Trondheim Directions

Sun Dec 13 2026 15:00

Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Íslendingafélagið Kjartan í Þrándheimi, býður alla velkomna á Jólahátíð 13. desember í Sverresborg kirkesenter í Þrándheimi.

Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi.

Jólahátíðin hefst kl. 15 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu.

Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð.

Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið.

Hlökkum til að sjá sem flesta og verið hjartanlega velkomin!