Jólakonfekt Spectrum
The church Fella-og Hólakirkja, Hólaberg 88, 111 Reykjavík Directions
Tue Dec 08 2026 20:00
Spectrum opnar enn á ný jólakonfektkassann, þar sem eru bara góðir molar. Sumir þeirra eru löngu orðnir klassískir, aðrir eru gamalkunnugir en í nýjum umbúðum og sumir eru splunkunýtt framlag vöruþróunardeildarinnar til að halda konfektunnendum á tánum. Breiddin er aðalsmerki Spectrum og hér verða latínusöngur, nútímakórtónlist, djasshljómar og þjóðleg klassík á sínum stað – með öðrum orðum eitthvað við allra hæfi.
Ingveldur Ýr Jónsdóttir stýrir Spectrum og einvalalið hljóðfæraleikara leikur undir; Vignir Þór Stefánsson á píanó, Chrissie Telma Guðmundsdóttir á fiðlu og Þorvaldur Kári Ingveldarson á slagverk.
Miðaverð er 4.900 kr., en 1.200 kr. fyrir börn 12 ára og yngri. Slóð á tix.is er hér í viðburðinum. Hafið samband við kórfélaga til að fá miða á afsláttarverði.