Jólaþorpið í Hafnarfirði - opnun 2026
Jólaþorpið í Hafnarfirði, Miðbær Hafnarfjarðar, 220 Hafnarfjörður Directions
Fri Nov 13 2026 17:00
Jólaþorpið í Hafnarfirði verður opnað með hátíðlegri dagskrá á Thorsplani föstudaginn 13. nóvember þegar ljósin verða tendruð á Cuxhaven-jólatrénu. Sendiherra Þýskalands, bæjarstjóri Hafnarfjarðar og formaður vinabæjarfélagsins Hafnarfjörður-Cuxhaven sjá um að tendra ljósin á trénu. Jólatréð er gjöf frá Cuxhaven, vinabæ Hafnarfjarðar í Þýskalandi til 38 ára 🎄
————————————————————–
Kaffihús í Hellisgerði, Hjartasvell og tívolí 🎀⛸️✨
Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði verður opið allar helgar frá og með 13. nóvember.
Föstudaga frá kl. 17-20
Laugardaga frá kl. 13-20
Sunnudaga frá kl. 13-18
Helliskaffi í Hellisgerði er opið miðvikudaga til sunnudaga til jóla.
Sérstök athygli er vakin á því að Hjartasvellið og tívolí við Venusarhúsið Strandgötu 11 eru opin allar helgar fram að jólum í takt við opnun Jólaþorpsins.
————————————————————–
🎀 Föstudagur 13. nóvember
Kl. 17:00 Jólaþorpið opnar
Kl. 18:00 Lúðrasveit Hafnarfjarðar
Kl. 18:15 Karlakórinn Þrestir
Kl. 18:30 Tendrun ljósanna á Cuxhaven jólatrénu
Kl. 18:40 Bókaálfarnir Una og Snotra
Danshópur frá Listdansskóla Hafnarfjarðar dansar um jólabæinn
🎀 Laugardagur 14. nóvember
Kl. 16 Söngvasyrpa með Leikhópnum Lottu
🎀 Sunnudagur 15. nóvember
Kl. 12 – 16 Pólski dagurinn á Bókasafni Hafnarfjarðar!
————————————————————–
🌟✨ Þú finnur jólaandann hjá okkur ✨🌟
Jólabærinn og Jólaþorpið iða allt af lífi og fjöri fyrir jólin. Fagurlega skreyttu hafnfirsku jólahúsin á Thorsplani eru fyrir löngu orðin landsþekkt fyrir ýmisskonar spennandi gjafavöru, sælkerakrásir, handverk og hönnun.
Tilvalið er að leita að hinni fullkomnu jólagjöf í Jólaþorpinu á meðan notið er gómsætra veitinga sem ylja að innan. Jólasveinarnir koma í heimsókn allar helgar og Grýla verður á vappi um bæinn á sunnudögum.
Strandgata frá Lækjargötu að Linnetstíg breytist í göngugötu á meðan Jólaþorpið er opið. Það er gert til að dreifa umferð gangandi vegfaranda um miðbæinn og tryggja öryggi allra okkar góðu gesta.
Við erum jólabærinn Hafnarfjörður
Við tökum hlýlega á móti þér og þínum
Allt um jólabæinn Hafnarfjörð 👉 hfj.is/jol
Fylgdu okkur á Facebook og instagram !