Jólavogur | Jóladraumar – Íslenski dansflokkurinn
Smáralind, Hagasmári 1, 201 Kópavogur Directions
Sat Dec 05 2026 14:00
Jólaglaðningur frá Kópavogsbæ við jólatréð í Smáralind 🎄
5. desember kl. 14:00 og 15:00
Íslenski dansflokkurinn býður gestum Smáralindar að stíga inn í heim Jóladrauma, ævintýralegrar jólasýningar fyrir alla fjölskylduna sem sýnd er í Borgarleikhúsinu í desember.
Í sýningunni fylgjumst við með ungri stúlku sem leggur af stað í leit að hinum dularfulla jólaanda. Á leiðinni kynnist hún furðulegum og skemmtilegum verum, meðal annars fúlum jólaketti, hræddum héra og illa lyktandi skötu!
Falleg og fjörug dansstund þar sem töfrar jólanna fá að njóta sín, áður en dansarar Íslenska dansflokksins bjóða gestum að slást í hópinn og læra nokkrar léttar hreyfingar.
Viðburðurinn er hluti af Jólavogi, jóladagskrá Kópavogsbæjar, og er öllum opinn.
Verið öll hjartanlega velkomin!