Jónfrí,  Creature of Habit og Ívar Klausen á Stúdentakjallaranum

Jónfrí, Creature of Habit og Ívar Klausen á Stúdentakjallaranum

Student Cellar, Sæmundargata 4, 102 Reykjavík Directions

Fri Oct 09 2026 20:00

Jónfrí, Creature of Habit og Ívar Klausen koma fram á Stúdentakjallaranum föstudaginn 9. október. Það er ókeypis inn og tónleikarnir hefjast klukkan 20:00

Meinlausi snekkjupopparinn Jónfrí treður upp með blöndu af indie, diskó og snekkjurokki.

Jónfrí gaf út plötuna Djúpfalsað efni á dögunum, stemmningsverk sem hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda. Það eru tveir nýjir meðlimir í live bandinu, sem kunna lögin nokkurn veginn. Þetta mun kannski allt hanga á bláþræði, sem er lang mesti fílíngurinn.

-

Creature of Habit, kallaður Reynir Snær í daglegu lífi treður upp með einstakri blöndu af útlagapoppi í bland við sitt take af skagfirsku sveiflunni. Einn vandaðasti sonur Sauðárkróks og hefur troðið upp á balli með Geirmundi, og einu sinni sagði Jónas Sen að hann hefði spilað á góðum tónleikum. Sjón er sögu ríkari.

-

Ívar Klausen er mjög virkur sem tónlistarflytjandi, session spilari og tónskáld en hann kemur fram á fjölmörgum og fjölbreyttum verkefnum og tónleikum á ári hverju.

Efnisskráin verður af léttari kantinum í anda sálarskotinnar popp tónlistar af fyrstu sóló plötu Ívars sem kom út í apríl ásamt splúnku nýjum óútgefnum lögum bæði í dúr og moll sem verða leikin á stór og lítil hljóðfæri. Þetta verður Kúl Klausen í túrbó NÆS fýling.

Jónfrí, Ívar og Creature of Habit gáfu allir út sérlega glæsilegar vínylplötur á dögunum sem verða til sölu á staðnum ásamt ýmsum varningi.