Kaffispjall um frumkvæðisathugun GEV - október 2026

Kaffispjall um frumkvæðisathugun GEV - október 2026

Mannréttindahús ÖBÍ, Sigtún 42, 105 Reykjavík Directions

Tue Oct 06 2026 20:00

Kaffispjall Félags fósturforeldra fer fram fyrsta þriðjudag hvers mánaðar í Mannréttindahúsinu. Viðburðirnir eru vettvangur fyrir fósturforeldra til að hittast, ræða saman, sækja og/eða deila reynslu og er frábær vettvangur fyrir öll til að sækja stuðning frá hinu stærra samfélagi fósturforeldra.

Í júlí 2026 gaf GEV út skýrslu um frumkvæðisathugun á eftirlitsskyldum barnarverndarþjónusta með börnum í fóstri. Skýrslan byggði á gögnum sem GEV aflaði frá öllum barnaverndarþjónustum um heimsóknir þeirra á fósturheimili barna sem barnaverndarþjónusturna voru með vistuð í fóstri á tímabilinu 4. mars - 1. apríl á þessu ári. Við hefjum kaffispjallið með að kynna fósturforeldra fyrir því helsta sem fram kom í skýrslunni og hvernig það lýtur við félaginu, í kjölfarið verður opnað á umræður um efni kynningarinnar. Að þeim loknum verður svo setið áfram og félagsfólki gefst kostur að spjalla um allt sem þeim

Boðið verður upp á þátttöku í gegnum fjarfund en hlekkur verður sendur félagsfólki þegar nær dregur og auglýstur í lokuðu samfélagi okkar á Facebook.

Við hvetjum þau sem áhugasöm eru um að mæta á kaffipsjallið gjarnan til að melda sig.