Kaffispjall um meistararannsókn á upplifun fósturforeldra af barnaverndarþjónustu

Kaffispjall um meistararannsókn á upplifun fósturforeldra af barnaverndarþjónustu

Mannréttindahús ÖBÍ, Sigtún 42, 105 Reykjavík Directions

Tue Nov 03 2026 20:00

Kaffispjall Félags fósturforeldra fer fram fyrsta þriðjudag hvers mánaðar í Mannréttindahúsinu. Viðburðirnir eru vettvangur fyrir fósturforeldra til að hittast, ræða saman, sækja og/eða deila reynslu og er frábær vettvangur fyrir öll til að sækja stuðning frá hinu stærra samfélagi fósturforeldra.

Að þessu sinni hefjum við kvöldið á kynningu frá félagsráðgjafanum Írisi Dögg Ingvadóttur en hún lauk meistaranámi sínu með að rannsaka upplifanir fósturforeldra af hindrunum og stuðningi í barnaverndarþjónstur. Verkefnið var vísir að stærri rannsókn sem Háskóli Íslands vinnur að um þessar mundir. Að kynningu lokinni verður gefi færi á spurningum og umræðum um efni hennar en að því loknu verður setið áfram og rætt um allt milli himins og jarðar.

Boðið verður að hlusta á kynningu og taka þátt í umræðum um hana í gegnum fjarfundarbúnað. Hlekkur á fjarfund verður sendur félagsfólki í tölvupósti og birtur á lokuðum hóp fyrir félagsfólk þegar nær dregur.