Kjallarakabarett í Þjóðleikhúskjallaranum

Kjallarakabarett í Þjóðleikhúskjallaranum

National Theatre of Iceland - Basement, Hverfisgata 19, 101 Reykjavík Directions

Sat Jan 23 2027 21:00

Kjallarakabarett snýr aftur með öllum sínum kostum og kynjum. Burlesque, kabarett, sirkus, drag og „alls konar fullorðins“ fyrir fólk sem hlær hátt!

Allar eru sýningarnar ólíkar og yfir fjörutíu listamenn víðsvegar að koma fram yfir veturinn. Vinsamlega athugið að sýningin er stranglega bönnuð börnum og hentar ekki þeim sem óttast undur mannslíkamans.

Sýningarnar eru eina helgi í mánuði og eru stundum þemu og stundum ekki. Til að fylgjast með hverjir koma fram hvenær bendum við á Kjallarakabarett á instagram og facebook. Húsið er opnað 20:30 og sýning hefst svona ca kl. 21 - fer eftir því hvernig stóra sviðið snýst fyrir ofan okkur það kvöldið.

Miðasala hefst mánuði fyrir hverja sýningarhelgi. Minnum á að ef þið eruð með stóran hóp er hægt að hafa samband við midasala@leikhusid.is til að fá hópaafslátt.

6. nóv: Carrot Machine! Bara ný atriði!

7. nóv: Carrot Machine! Bara ný atriði!

11. des: Jólasýning

12. des Jólasýning

22. jan: Bóndadagur

23. jan: Bónerdagur

12. feb

13. feb: Galentines!

Frí í mars vegna árshátíðargigga hópsins

9. apríl

10. apríl

7. maí

8. maí: Lokasýning vetrarins