Kröftug kvennastund í Tónabíó
RVK Brewing Co. - Tónabíó, Skipholt 33, 105 Reykjavík Directions
Thu Oct 15 2026 19:30
Skráning hér: https://forms.cloud.microsoft/e/qnvz6zY1Hs
Í tilefni bleiks októbers blæs Kraftur til kröftugrar Kvennastundar. Við hlökkum til að sjá sem flestar konur fimmtudaginn 15. október milli klukkan 19:30 og 21:30. Við fáum að hlýða á kraftmiklar konur deila reynslu sinni af því að greinast með krabbamein sem og að sinna aðstandendahlutverkinu. Fundarstjórn verður í höndum Birnu Rúnar Eiríksdóttur sem mun að auki kitla hláturtaugarnar. Léttar veitingar verða í boði og Kraftsbúðin verður að sjálfsögðu á svæðinu og þar verða rosalegir dílar 🩷🩷🩷