Kvikmyndasýning á Ljósanótt - Töfrandi himinn Íslands

Kvikmyndasýning á Ljósanótt - Töfrandi himinn Íslands

Bókasafn Reykjanesbæjar, Hjallavegur 2, 260 Ytri-Njarðvík Directions

Fri 04.09.2026 15:00

Magical Sky Iceland er bæði áhrifamikið tónverk og sjónræn kvikmynd sem dregur áhorfendur inn í einstaka veröld íslenskrar náttúru, sólmyrkva og himinljósa. Verkið sameinar tónlist og myndmál á þann hátt að úr verður djúpstæð upplifun þar sem áheyrandi og áhorfandi skynjar tengingu milli lands, himins og innri tilfinninga.

Magical Sky Iceland er ekki aðeins verk til að horfa á eða hlusta á, heldur upplifun sem snertir á tilfinningum og ímyndunarafli. Það minnir á smæð mannsins gagnvart náttúrunni en um leið á fegurðina sem felst í því að staldra við og njóta augnabliksins.

Sýnd í Félagsbíói - Bókasafn Reykjanesbæjar

Performers