Kyrrðardagur í Víðistaðakirkju
Víðistaðakirkja, Garðavegur 23, 220 Hafnarfjörður Directions
Sat Oct 31 2026 10:00
Laugardaginn 31. október verður kyrrðardagur í Víðistaðakirkju. Þetta er kærkomin stund í þögn, í endurnæringu, að líta inn á við og til hins æðra. Samveran er frá kl 10 – 16 og hefst með kynningu og tvöfaldri 20 mín kyrrðarbæn með gönguíhugun á milli. Það verður léttur hádegisverður, biblíuleg- og sjónræn íhugun á freskum í kirkjunni, djúpslökun, og frjáls hvíldartími. Það er gott að hafa með sér dýnu og teppi fyrir djúpslökunina, hlýja peysu og útivistarföt, bók eða íhugunarefni, einnig verður lesefni til að glugga í á staðnum.
Gengið er inn í þögnina að kynningu lokinni og hún rofin undir lok samveru þar sem gefst færi á samtali.