Kyrrðarstund við kertaljós

Kyrrðarstund við kertaljós

Landakotskirkja, Túngata 13, 101 Reykjavík Directions

Thu Nov 05 2026 20:00

Kyrrrðarstund við kertaljós

Í skammdeginu, þegar birtan dvínar og kyrrð færist yfir, býður kvennakórinn Vox feminae til Kyrrðarstundar við kertaljós í tilefni allra heilagra messu fimmtudaginn 5. nóv. kl. 20 í Kristskirkju, Landakoti.
Kyrrðarstundin er helguð minningu og kærleika. Umvafin kertaljósi og fallegri tónlist getum við staldrað við um stund og hugsað til þeirra sem eru okkur kærir.
Á efnisskránni eru trúarleg verk og vögguljóð sem hafa fylgt kórnum í gegnum tíðina og eiga vel við á þessari stundu.
Auk Vox feminae flytur Gerður Kristný rithöfundur hugvekju og Ástrós Eva Einarsdóttir leikur á selló.
Stjórnandi er Stefan Sand.