Langleggur og Skjóða á aðalsafni

Langleggur og Skjóða á aðalsafni

Kópavogur library, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Directions

Mon Nov 30 2026 16:15

Langleggur og Skjóða eru systkini jólasveinanna og kunna margar skemmtilegar sögur úr Grýluhelli. Þau hafa heldur betur slegið í gegn síðustu ár og heimsækja hinar ýmsu jólaskemmtanir með glænýja jólasögu á hverju ári.

Í ár segir Skjóða frá því þegar hún og Rófa litla systir hennar fengu það mikilvæga verkefni að sækja hið fullkomna jólatré í Jólaskóginn. Ferðin gekk þó heldur hægar en áætlað var og áður en þær vissu af var

skollið á niðamyrkur. Skjóða er myrkfælin en verður nú að vera hugrökk fyrir litlu systur sína. Geta þær ratað aftur heim í Grýluhelli — og getur jólastjarnan kannski vísað þeim veginn?

Sagan er um 20 mínútur að lengd og á eftir syngja þau vel valin jólalög með krökkunum. Mörg börn þekkja Skjóðu úr jóladagatali Hurðaskellis og Skjóðu, Jólasögum Skjóðu á Storytel og úr bíómyndinni Jólamóðir.

Leikritið er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin!