Leikjagerð með GameMaker - Helgarnámskeið

Leikjagerð með GameMaker - Helgarnámskeið

Háskólinn í Reykjavík, Menntavegur 1, 102 Reykjavík Directions

Sat Oct 17 2026 13:00

Leikjagerð með GameMaker - Helgarnámskeið

Aldur: 11 - 15 ára

Um námskeiðið

Þetta helgarnámskeið er STEAM-miðað námskeið þar sem nemendur kynnast heimi leikjagerðar og forritunar í gegnum skapandi og verkefnamiðaða vinnu í GameMaker.

Nemendur læra grunnatriði leikjahönnunar, þar á meðal hvernig á að hanna leikjahluti, búa til reglur, hreyfingar og einföld forritunaratriði. Þeir vinna að því að þróa eigin tölvuleiki allt frá hugmynd að útgáfu sem hægt er að spila og kynnast því hvernig leikir eru byggðir upp.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á sköpun, hönnunarhugsun og lausnamiðaða nálgun ásamt því að efla rökhugsun og sjálfstæða vinnu. Nemendur fá einnig tækifæri til að prófa og bæta leikina sína í gegnum endurgjöf og samvinnu.

Skipulag og verð

Dagar: laugardagur og sunnudagur

Tími: 13:00–16:00

Verð: 15.900 kr. á dag

Dagsetningar: 17. og 18. oktober 2026