Leshringur í Hannesarholti - Emily Dickinson
Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Directions
Fri 11.09.2026 14:00
Áhugi er fyrir því í Hannesarholti að bjóða uppá leshringi fyrir leika og lærða á komandi starfsári. Eina skilyrði fyrir þátttöku er áhugi á lestri góðra bóka og gott skap. Sjálfboðaliðar munu leiða leshringina og ekki er rukkað inn.
Emily Dickinson verður í aðalhlutverki í fyrsta leshringnum í Hannesarholti föstudaginn 11.september kl.14. Rán Tryggvadóttir lögfræðingur og lestrarhestur og Magnús Sigurðsson skáld og þýðandi deila upplifun sinni af verkum Dickinson. Allir velkomnir, núverandi og verðandi aðdáendur Emily Dickinson. Enginn aðgangseyrir.
Emily Dickinson Berhöfða líf - ljóðaúrval inniheldur þýðingar Magnúsar Sigurðssonar á völdu broti af höfundarverki Emily Dickinson. Bókin byggir meðal annars á doktorsritgerð Magnúsar um Emily Dickinson og þær viðtökur sem ljóð hennar fengu í gegnum tíðina á Íslandi. Rán er mikill bókaunnandi og öflugur lestrarhestur og er iðin við að deila lestrarupplifun sinni með samborgurum á samfélagsmiðlum. Við búum við þann lúxus að fá Magnús með okkur í hópinn, sem veit meira en flestir um Emily Dickinson. Það var einmitt hann sem vann bókina Berhöfða líf, sem Rán las upp til agna.