Líf í bókum - Þúsund ára saga íslenskra bókmennta
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Mon Apr 05 2027 19:30
Hvers vegna urðum við bókaþjóð og erum við það enn?
Íslensk bókmenntasaga býr í senn yfir miklu ríkidæmi og ótal gátum. Enginn veit með vissu af hverju Íslendingar skrifuðu einstakar og umfangsmiklar frásagnarbókmenntir í óbundnu máli á miðöldum. Æ síðan hafa Íslendingar ótal sinnum og við ólík tækifæri leitað í bókmenntahefðina, hvort heldur í sjálfstæðisbaráttu eða persónulegum vanda, hún hefur reynst þeim lykill að sjálfsvitund og þjóðarsögu.
Á námskeiðinu verður varpað ljósi á þessar gátur með hraðferð um bókmenntasöguna alla, en líka spurt um hvað var skrifað og hverjir máttu skrifa og rætt um vettvang bókmenntanna, læsi og bókamarkað.
Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á íslenskum bókmenntum.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um alla helstu áfanga í íslenskri bókmenntasögu og þeir tengdir við Íslandssöguna og þjóðfélagslegar breytingar sem áttu sér stað á sama tíma.
Ávinningur þátttakenda:
- Að fá yfirlit yfir íslenska bókmenntasögu.
- Að öðlast dýpri eða annan skilning á sínum uppáhaldsverkum.
- Að kynnast íslenskum verkum sem þeim var ekki kunnugt um áður.