Listahátíð barnanna í bleikum október

Listahátíð barnanna í bleikum október

Bústaðakirkja, Tunguvegur 25, 108 Reykjavík Directions

Sun Oct 18 2026 13:00

Á sunnudaginn fær unga fólkið að njóta sín við helgihaldið í bleikum október. 

Hljóðfæranemendur Tónskólans í Reykjavík leika vel valin verk. 

Olga María Rúnarsdóttir syngur.

Jónas Þórir kantor kirkjunnar og sr. Sigríður Kristín leiða stundina ásamt messuþjónum.  

Verið velkomin á Listahátíð barna í bleikum október í Bústaðakirkju.

Listahátíð barnanna er hluti af dagskrá Bleiks októbers í  Bústaðakirkju. 

Í hádeginu á miðvikudögum eru tónleikar til styrktar Ljósinu.  Þá er bleika slaufan einnig til sölu.  Frítt er inn á tónleikana en tekið er við frjálsum framlögum. Jónas Þórir, kantor kirkjunnar hefur sett saman glæsilega dagskrá og allur ágóði rennur til Ljóssins, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess.

Performers