Ljóðin eru Tik Tok bókmenntanna og tónlistin er hraðritun tilfinninganna
Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Directions
Wed Apr 21 2027 20:00
Ef orðin ná ekki að fanga tilfinningarnar og boðskapinn, er oftar en ekki leitað í tónlistina. Ef það dugar ekki til er þögnin talin áhrifaríkasta leiðin til að tjá hið ólýsanlega. Ég mun spila frumsamda tónlist og flytja ljóð sem eru innblásin af ferðalagi mínu í gegnum lífið og starfi mínu sem heimilislæknir. Verkin tengjast mörgum af þeim málefnum sem við þurfum að vera óhrædd að ræða; dauði, sorg, tengsl, hamingja og einmanaleiki. Eitt af markmiðum mínum með tónlistinni og ljóðunum er að vekja athygli á mismunandi tilfinningum sem geta vaknað hjá okkur í hversdagsleikanum.
Fyrir áhugasama er hægt að fylgjast nánar með á Instagramsíðunni "stafsson.ordhljomur".