Lokaviðburður Snjallræðis 2026
Marel á Íslandi, Austurhraun 9, 210 Garðabær Directions
Thu Dec 10 2026 10:00
Komdu og fagnaðu með okkur á lokaviðburði Snjallræðis fimmtudaginn 10. desember.
Í haust hafa níu teymi unnið hörðum höndum að hugmyndum sínum í háskólahraðlinum Snjallræði. Þau hafa greint viðfangsefnin, mótað framtíðarsýn og lagt drög að næstu skrefum. Nú er komið að því að sýna afraksturinn.
Á lokaviðburðinum kynna teymin verkefnin sín og fagfólk úr frumkvöðlasenunni tekur þátt í umræðum. Verkefnin eru fjölbreytt og ná frá umhverfisvænum umbúðum og ræktun örgrænmetis til tungumálanáms, fatahönnunar og gervigreindar. Öll eiga þau það sameiginlegt að geta haft mikil áhrif til góðs.
Þetta er kjörið tækifæri til að kynnast hugmyndunum, hitta fólkið á bak við þær og heyra hvert þau stefna. Viðburðurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á nýsköpun, hvort sem þú ert frumkvöðull, fjárfestir, starfar í háskólasamfélaginu eða langar einfaldlega að sjá hvað er á döfinni.
Snjallræði er háskólahraðall Háskólans á Akureyri, Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík, unninn í samstarfi við MITdesignX. Bakhjarlar Snjallræðis eru JBT Marel, Vísindagarðar og Reykjavíkurborg.
Fimmtudaginn 10. desember kl. 10 til 12
JBT Marel, Austurhrauni 9, 210 Garðabæ, salurinn Lón
Skráning fer fram hér
https://forms.cloud.microsoft/e/9djQDVkcz9