Maður er manns gaman - Gjörnýtingarsinni segir frá

Maður er manns gaman - Gjörnýtingarsinni segir frá

Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Directions

Wed Oct 21 2026 14:00

Bergljót Gunnarsdóttir listakona - öðru nafni Beggó - mætir í veitingastofur Hannesarholts kl.14 miðvikudaginn 21.október og sýnir okkur ýmislegt sem hún hefur gert úr tilfallandi dóti sem annars hefði verið hent. Beggó kallar sig "gjörnýtingarsinna" og hefur gert upp tíu dúkkuhús, flest úr Góða hirðinum og gefið þeim nýtt líf, langömmubörnum hennar til ómældrar ánægju.

Verið öll velkomin í spjall og gleði yfir því sem birst getur úr gömlu rusli. Kaffihúsið opið fyrir þá sem vilja. Enginn aðgangseyrir.

Nýlega birtist viðtal við Bergljótu í Kastljósi þegar hún gaf Kvennaathvarfinu dúkkuhús sem hún hún hafði gert upp á þennan máta til minningar um vinkonu sína Elísabetur Gunnarsdóttur. https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-09-17-gjornytingarsinni-gerdi-upp-dukkuhus-i-minningu-kaerrar-vinkonu-487307