MÁLVERKAMAÐUR

MÁLVERKAMAÐUR

Breid, Bárugata 8-10, 300 Akranes Directions

Thu Oct 22 2026 18:00

Verið velkomin á myndlistarsýninguna mína „Málverkamaður“ á Vökudögum á Akranesi sem standa frá 22. október – 31. október.

Staðsetning: Breið nýsköpunarsetur (2. hæð)

Bárugata 8-10 Akranesi

Opnunartímar og viðvera listamanns:

Fimmtudagur 22. okt: 18:00 – 21:00 (SÝNINGAROPNUN)

Föstudagur 23. okt: 18:00 – 21:00

Laugardagur 24. okt: 13:00 – 20:00

Sunnudagur 25: okt. 13:00 – 18:00

Laugardagur 31. okt: 13:00-18:00 ( ATH. Lokadagur).

Um sýninguna:

Ég mun bjóða upp á úrval af kraftmikilum og litríkum landslagsmálverkum af öllum stærðum og verðum. Einnig mun ég bjóða upp á hágæða eftirprent af völdum verkum til sölu sem og eiguleg tækifæriskort.

Sýningartitillinn er hálfgerð starfsævisaga mín. Í gegnum tíðina hef ég unnið mikið með íslenskt mál og sögur, þann styrkleika hef ég svo notað til að segja sögur þeirra málverka sem ég hef málað af íslenskri náttúru og framleitt hvorutveggja mál og málverk eins og verkamaður. Þess vegna er ég; Mál Verka Maður.