Messa í Háteigskirkju á Leitourgia ráðstefnu

Messa í Háteigskirkju á Leitourgia ráðstefnu

Háteigskirkja, Háteigsvegur 27-29, 105 Reykjavík Directions

Thu Nov 05 2026 18:00

Leitourgia er norrænn vettvangur fyrir fræðslu, rannsóknir og upplifun á sviði helgihalds og kirkjutónlistar. Nú í nóvember er árleg ráðstefna haldin í Reykjavík, þar sem við njótum gestrisni þriggja safnaða miðsvæðis í höfuðborginni okkar.

Auk fyrirlestra, tónleika og seminara verður opin messa í Háteigskirkju fimmtudaginn 5. nóvember, kl. 18. Þar þjóna prestarnir Ása Laufey Sæmundsdóttir, Ingimar Helgason og dr. Sigríður Guðmarsdóttir sem prédikar.

Tónlistarstjórar messunnar eru Arngerður María Árnadóttir og Guðný Einarsdóttir. Kórinn Kordía leiðir safnaðarsöng og flytur sálma með okkur hinum.

Í þessa messu bjóðum við ykkur öll innilega velkomin, til að njóta, syngja, biðja og taka inn allt það góða i helgihaldinu okkar.

Sjáumst í Háteigskirkju 5. nóvember.