Minning látinna í Bústaðakirkju, ljósatendrun
Bústaðakirkja, Tunguvegur 25, 108 Reykjavík Directions
Sun Nov 01 2026 13:00
Allra heilagra messa fer fram í Bústaðakirkju sunnudaginn 1. nóvember nk. kl. 13:00. Einsöngvarar úr Kammerkór Bústaðakirkju syngja. Tónlist eftir Bach og Mozart verður í forgrunni í messunni. Matthías Stefánsson fiðluleikari spilar ásamt Jónasi Þóri organista, sem stjórnar söng og tónlist.
Minnst verður látinna og fá kirkjugestir tækifæri til að tengdra á bænaljósi í minningu ástvina sinna.
Séra Þorvaldur Víðisson prédikar og þjónar fyrir altari.
Verið hjartanlega velkomin til messu í Bústaðakirkju.