Misseraskipti – Ella Medicus með Ótal og Antoníu Berg

Misseraskipti – Ella Medicus með Ótal og Antoníu Berg

Bragginn við Stríðsárasafnið, Bragginn við Stríðsárasafnið, Reyðarfjörður Directions

Mon Oct 26 2026 20:00

Misseraskipti er mynd- og hljóðinnsetning eftir Ellu Medicus og Ótal (Óskar Þór Arngrímsson), í samstarfi við Antoníu Berg.

Verkið byggir á myndefni og hljóðum úr náttúrunni í nágrenni Neskaupstaðar. Með því að flétta saman myndbrotum skapar Ella Medicus upplifun þar sem áhorfandinn ferðast á milli kunnuglegra landslaga og óhlutbundins sjónheims.

Hljóðheimurinn, sem Ótal hefur samið, inniheldur upptökur af Antoníu Berg syngja þjóðlagið *Sumarkveðju*, ásamt hljóðum úr umhverfinu og tónum úr hljóðgervlum. Mannröddin og náttúruhljóðin verða að hljóðfærum og hráefni í tónverkið.

Saman mynda hljóðin og myndirnar heildstæða og áhrifaríka upplifun sem kannar mörkin milli sumars og vetrar – breytilega birtu, dularfullt myrkur og taktfastan hjartslátt náttúrunnar þegar árstíðirnar skiptast á.

Öll hjartanlega velkomin!

Performers