Mótum stefnuna saman

Mótum stefnuna saman

Samfylkingin Akureyri, Sunnuhlíð 12 Directions

Sat Nov 28 2026 11:00

Samfylkingin býður til vinnufundar í tengslum við málefnastarf flokksins.

📅 Laugardaginn 28. nóvember

⏰ Kl. 11:00 - 13:00

📍 Salur Samfylkingarinnar á Akureyri - Sunnuhlíð 12

Samfylkingin býður flokksfélögum á vinnufund um uppfærslu á stefnu flokksins fyrir landsfund vorið 2027. Hverju vilt þú breyta í gildandi stefnu? Hvað vantar og hvaða áherslur vilt þú halda í?

Hægt verður að koma við hvenær sem er á þessum tíma, taka þátt í samtölum við tengiliði málefnanefnda, kjörna fulltrúa og góða félaga og leggja sitt af mörkum til málefnastarfsins.

Markmiðið er að safna fjölbreyttum sjónarmiðum og hugmyndum sem nýtast við áframhaldandi vinnu við uppfærslu á stefnu Samfylkingarinnar.

Öll hjartanlega velkomin! 🌹

Performers