Námskeið og próf til leyfis til að gera eignaskiptayfirlýsingar

Námskeið og próf til leyfis til að gera eignaskiptayfirlýsingar

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Tue Jan 26 2027 15:00

Endurmenntun Háskóla Íslands, sem hefur verið starfrækt síðan 1983, er í fararbroddi í endur- og símenntun á Íslandi. Hún hefur margþætt tengsl við íslenskt samfélag og teygir anga sína víða.

Í samstarfi við Húsnæðis-, mannvirkja, og skipulagsstofnun er haldið nám fyrir þau sem stefna á að sækja um leyfi til að gera eignaskiptayfirlýsingar.

Prófskírteini verða veitt þeim sem hafa lokið námskeiðinu með lágmarki 7,0 í einkunn.

Námskeiðið byggir á reglugerð nr. 233/1996 um leyfi til að gera eignaskiptayfirlýsingar.

Umsóknarfrestur í Námskeið og próf til leyfis til að gera eignaskiptayfirlýsingar er til og með 29. apríl nk.

Námskeið og próf til leyfis til að gera eignaskiptayfirlýsingar skiptist í þrjá hluta:A: FjöleignarhúsalögB: Gerð skráningartöflu og útreikningur hlutfallstalna í fjöleignarhúsumC: Eignaskiptayfirlýsingar

A: Fjöleignarhúsalög

Markmið A-hluta námskeiðsins er að veita nemendum góða yfirsýn yfir og þekkingu á helstu reglum laga um fjöleignarhús nr. 26/1994. Farið er yfir reglugerð 910/2000 um eignaskiptayfirlýsingar o.fl. í fjöleignarhúsum.

Að námskeiði loknu skal nemandi:

  • Hafa góða yfirsýn og þekkingu á á helstu reglum laga um fjöleignarhús nr. 26/1994.
  • Hafa góða þekkingu á reglugerð 910/2000 um eignaskiptayfirlýsingar o.fl. í fjöleignarhúsum.

B: Gerð skráningartöflu og útreikningur hlutfallstalna í fjöleignarhúsum

B-hluti námskeiðsins fjallar um hvernig skráningartöflur eru unnar við skráningu og skiptingu mannvirkja í séreignar- og sameignarhluta. Lögð er áhersla á aðferðir við útreikning, uppsetningu gagna og tryggingu samræmis milli teikninga, rýmis- og flatarmálaskráa. Nemendur læra að nota viðeigandi verkfæri og aðferðir til að tryggja réttar og gagnsæjar skráningar í samræmi við staðla, fylgiskjal reglugerðar um eignaskiptayfirlýsingar og leiðbeiningar/skráningarreglur HMS og byggingafulltrúa.

Að námskeiði loknu skal nemandi:

  • Geta litað teikningar skv. skráningarreglum.
  • Kunna að númera teikningar skv. skráningarreglum.
  • Hafa öðlast leikni í útfyllingu skráningartöflu.
  • Þekkja staðalinn ÍST 50:1998 Flatarmál og rúmmál bygginga.
  • Hafa þekkingu á hlutfallstöluútreikningi.

C: Eignaskiptayfirlýsingar

Eignaskiptayfirlýsingar byggja á reglum laga um fjöleignarhús nr. 26/1994, reglugerð 910/2000 um eignaskiptayfirlýsingar, útreikning hlutfallstalna o.fl. í fjöleignarhúsum, fylgiskjali reglugerðar um eignaskiptayfirlýsingar, lög um skráningu, merki og mat fasteigna, byggingarlöggjöf, þinglýsingum og annarri löggjöf er máli skiptir.

Markmið námskeiðs er að veita nemendum góða yfirsýn yfir og þekkingu við gerð eignaskiptayfirlýsinga, í samræmi við þau lög og reglugerðir sem kennd eru á grunnnámskeiðinu, hlutverk skráningartöflu í eignaskiptayfirlýsingum, uppsetningu eignaskiptayfirlýsinga, undirbúning, gagnaöflun og vinnubrögð.

Að námskeiði loknu skal nemandi:

  • Þekkja hvaða gögn þurfa að liggja til grundvallar eignaskiptayfirlýsingu.
  • Þekkja hvaða lög, reglugerðir og skráningarreglur þarf að styðjast við þegar eignaskiptayfirlýsing er gerð.
  • Búa yfir hæfni til að útbúa eignaskiptayfirlýsingar.
  • Hafa þekkingu á aðkomu sýslumanns vegna eignaskiptayfirlýsinga.

Kennslufyrirkomulag

Netfyrirlestrar eru aðgengilegir nemendum á námsumsjónarkerfi frá og með 6. maí og þar til námskeiðinu er að fullu lokið.

Nemendum er boðið upp á upplýsingafund á Zoom um skipulag námskeiðsins og námsumsjónarkerfið þann 6. maí kl. 14:00.

Þriðjudaginn 12. maí kl.9:00 - 11:00 er staðpróf úr A-hluta (Fjöleignarhúsalög) sem fram fer hjá Endurmenntun HÍ í Dunhaga 7 í Reykjavík. Einnig er hægt að taka prófið í ákveðnum fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum víðsvegar um landið.

Skyldumæting er í eftirfarandi vinnustofur sem fram fara í fjarkennslu á Zoom:

  • Föstudaginn 22. maí. B-hluti (Skráningartöflur og útreikningar hlutfallstalna) - skipt í hópa og hver hópur er í um 2-3 klst í senn yfir daginn.
  • Mánudaginn 1. júní. C-hluti (Eignaskiptayfirlýsingar) - skipt í hópa og hver hópur er í um 2-3 klst í senn yfir daginn.

Athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.

Námsmat

Námsmat byggir á staðprófi úr A-hluta (10%), verkefnavinnu í Zoom-vinnustofum og skilaverkefni (samtals 30%) og lokaprófi (60%).

Til að námskeið teljist lokið þarf heildareinkunn að vera að lágmarki 7,0.

Prófagjald er innifalið í námskeiðsgjaldi en greitt er sérstaklega fyrir upptökupróf.

Lokaprófið fer fram 5. júní hjá Endurmenntun HÍ við Dunhaga 7 í Reykjavík. Einnig er hægt að taka prófið í ákveðnum fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum víðsvegar um landið. Sjúkra- og upptökupróf fer fram 16. júní.

Próftökum verður boðið upp á æfingainnlit í prófakerfið áður en prófið fer fram.

Fagráð

Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, yfirlögfræðingur/aðstoðarforstjóri HMSTryggvi Már Ingvarsson, framkvæmdastjóri HMSEyþór Bjarki Sigurbjörnsson, sérfræðingur HMS

Umsókn

Sótt er um í gegnum island.is með því að smella á skráningarhnappinn hér fyrir ofan. Forkröfur eru að hafa lokið Grunnnámskeið til leyfis eignaskiptayfirlýsinga og merkjalýsinga eða að hafa lokið leyfi til merkjalýsinga á síðustu 5 árum og geta staðfesta slíkt með fylgigögnum.

Umsóknir verða afgreiddar daginn eftir að umsóknarfresti lýkur. Rafrænt svar verður sent á það netfang sem gefið er upp í umsókninni.

Nánar um kennara

Þorvaldur Hauksson er lögmaður við embætti ríkislögmanns og hefur víðtæka þekkingu á lagalegum málefnum fasteigna. Þorvaldur er með BA- og MA-gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands auk meistaragráðu í lögfræði frá Oxford háskóla og mun annast kennslu varðandi fjöleignarhúsalög í A-hluta námskeiðsins.

Berglind Björg Sigvaldadóttir er byggingarfræðingur og sérfræðingur í mannvirkjaskráningu og skráningu fasteigna. Hún hefur starfað hjá Fasteignamati ríkisins / Þjóðskrá Íslands og er núna sérfræðingur hjá deild byggingarmála á Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Berglind hefur unnið við gerð eignaskiptayfirlýsinga frá árinu 2006, bæði sem leyfishafi og yfirferðaraðili fyrir sveitafélög, og mun kenna B- og C-hluta námskeiðsins.