Norrænt sambandsríki - draumsýn eða leiðarljós norræns samstarfs.
Nordic House, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík Directions
Fri 28.08.2026 14:00
Fyrir rúmum 15 árum kom sænski sagnfræðingurinn Gunnar Wetterberg með þá róttæku hugmynd að Norðurlöndin ættu að sameinast í eitt sambandsríki sem myndi gera þau að einu sterkasta ríki heims. Hugmyndina setti hann fram í bókinni „Sambandsríkið Norðurlönd“.
Þegar hann setti hugmyndina fram taldi hann að þar sem íbúar landanna væru vanir því að búa í sjálfstæðum ríkjum þyrfti nokkur ár til þess að sjá hugmyndina í samhengi. Nú hefur rykið sest en hugmyndin lifir góðu lífi enn hjá hópi fólks sem vill halda henni á lofti og skoða möguleika nánara samstarfs hvort heldur undir einum fána sambandsríkis eða á mismunandi sviðum.
Norræna félagið og Norræna húsið bjóða til áhugaverðs viðburðar með Gunnar Wetterberg föstudaginn 28. ágúst kl 14.00. Gunnar mun fjalla um hugmynd sína um Sambandsríkið Norðurlönd, hvernig hún hefur þróast frá því hann kom fyrst fram með hana og hvernig hann sér fyrir sér samstarf Norðurlandanna í framtíðinni.
Móttaka verður að loknum fundi.
Performers
-
Norræna félagið / Foreningen Norden IslandNonprofit organization