Norrænt sambandsríki - draumsýn eða leiðarljós

Norrænt sambandsríki - draumsýn eða leiðarljós

Nordic House, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík Directions

Fri Oct 16 2026 13:00

Norræna félagið í samstarfi við Norræna húsið hefur boðið sænska sagnfræðingnum Gunnar Wetterberg að koma til Íslands og ræða sýn sína á Norrænt sambandsríki í haust.

Fyrir rúmum 15 árum kom Gunnar Wetterberg með þá róttæku hugmynd að Norðurlöndin ættu að sameinast í eitt sambandsríki sem myndi gera þau að einu sterkasta ríki heims. Hugmyndina setti hann fram í bókinni „Sambandsríkið Norðurlönd“.

Þegar hann setti hugmyndina fram taldi hann að þar sem íbúar landanna væru vanir því að búa í sjálfstæðum ríkjum þurfi nokkur ár til þess að sjá hugmyndina í samhengi. Nú hefur rykið sest en hugmyndin lifir góðu lífi enn hjá hópi fólks sem vill halda henni á lofti og skoða möguleika nánara samstarfs hvort heldur undir einum fána sambandsríkis eða á mismunandi sviðum.

Okkur er mikil ánægja að geta loksins boðið Gunnar velkominn til Íslands til að ræða þessa hugmynd sína og hvernig hún hefur þróast á þessum tíma. Er enn möguleiki á norrænu sambandsríki? Þessu og öðrum hugmyndum mun Gunnar svara í samtali sínu við þátttakendur í Norræna húsinu, föstudaginn 16. október milli 13.00-15.30. Öll velkomin