Notkun gervigreindar við fræðslu
Suðurlandsbraut 32, 6. hæð og Teams Suðurlandsbraut 32, Reykjavík, Suðurlandsbraut, 108 Reykjavík Directions
Wed Oct 28 2026 14:00
Faghópur Stjórnvísi um fræðslu í fyrirtækjum og stofnunum, í samstarfi við faghóp um gervigreind, býður til viðburðar þar sem inntakið er notkun gervigreindar við fræðslu.
Hólmfríður frá Reykjavíkurborg byrjar á að fara yfir og sýna hvernig hún styðst við gervigreind við gerð skriflegrar fræðslu, fræðslumyndbanda, texta á fræðslumyndböndum og þýðingu á þeim. Því næst segir Róbert frá Citizens frá því hvernig hægt er að nota spunagreind til að búa til allskyns annað stafrænt kennsluefni á einfaldan hátt. *Athugið að innihald erindisins hefur breyst frá því það var upphaflega auglýst*
Markmið fundarins er að varpa ljósi á hvaða leiðir eru í boði til að búa til efni með hjálp gervigreindar og vonandi enda fundinum með góðum umræðum um fleiri möguleika, þar sem fólk í fræðslumálum getur skipst á reynslu og myndað tengsl við aðra sem sinna fræðslu í fyrirtækjum.
Viðburðurinn fer fram á Teams.
Hlekkur á Teamsviðburð