Og hvað heimtar Drottinn annað af þér en að gjöra rétt, ástunda kærleika og framganga í lítillæti fyrir Guði þínum?
Grensáskirkja church, Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík Directions
Sun Oct 18 2026 11:00
Messa fer fram í Grensáskirkju sunnudaginn 18. október nk. kl. 11:00. Kirkjukór Grensáskirkju syngur undir stjórn Ástu Haraldsdóttur organista.
Séra Þorvaldur Víðisson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Gengið verður til altaris.
I Míka spádómsbók segir: Og hvað heimtar Drottinn annað af þér en að gjöra rétt, ástunda kærleika og framganga í lítillæti fyrir Guði þínum?
Það vers tónar í takt við ritningarlestra dagsins og boðskap guðspjallsins.
Þessi sunnudagur er 20. sunnudagur eftir þrenningarhátíð, sem er jafnframt dagur heilbrigðisþjónustunnar í þjóðkirkjunni. Útvarpsmessa dagsins á Rás eitt var tekin upp í Grensáskirkju af því tilefni. Í útvarpsmessunni önnuðust sjúkrahúsprestar Landspítalans þjónustuna ásamt organista og kór Grensáskirkju.
Verið hjartanlega velkomin til messu í Grensáskirkju.