Ómur – Purudeko Duo - Slagverksdúó

Ómur – Purudeko Duo - Slagverksdúó

Hof Menningarhús | Garún kaffihús, Strandgötu 12, 600 Akureyri Directions

Fri 28.08.2026 22:00

Ómur – Purudeko Duo - Slagverksdúó

Tónleikar með slagverksdúóinu Puruñeka Duo

Puruñeka Duo, slagverksdúó skipað þeim Matiss Leo Meckl og Tirso Ortiz Garrigós, býður upp á litríka og kraftmikla tónleikadagskrá með verkum eftir Philip Glass, Anders Koppel, Maurice Ravel, David Lang og Gene Koshinski. Með marimbu, víbrafóni, trommum og fjölbreyttum slagverkshljóðfærum kanna þeir fjölbreyttan hljóðheim þar sem rytmi, melódía, hljómar og ómar koma saman á lifandi og skemmtilegan hátt. Puruñeka Duo hefur komið fram víða í Evrópu og á Íslandi, unnið með tónskáldum, dönsurum og listafólki úr ólíkum listgreinum og unnið til verðlauna í Grachtenfestival-keppninni í Hollandi. Tónleikarnir gefa áheyrendum tækifæri til að upplifa slagverk í nýju ljósi  ekki aðeins sem rytmísk hljóðfæri heldur sem fjölbreyttan, melódískan og sjónrænan tónlistarheim.

Viðburðurinn er styrktur af Akureyrarbæ og í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar
Frítt er á alla viðburði Akureyrarvöku í Hofi.

Performers

  • Akureyrarvaka
    Akureyrarvaka

    The Anniversary of Akureyri Municipality is celebrated annually on the weekend closest to the day of establishment which is the 29th of August. It´s a celebration including cultural events like exhibitions, visual art, music, science and so on.