ÖNDUM FYRIR GÓÐAN MÁLSTAÐ Nirvana og Hjálparkokkar
Reykjavik, , Reykjavik Directions
Thu Nov 26 2026 17:30
Þakklæti er mér efst í huga.
Í tilefni þess að vel hefur gengið að manna tímana sem ég held, þá langar mig að gefa til baka til samfélagsins.
Stefni ég að að vera með slíka tíma reglulega þar sem ég fæ ykkur með mér og saman gefum við til góðs málefnis.
Í þessum tíma munum við gefa til Hjálparkokka en öll innkoma tímans verður gefin óskipt til þeirra sem andað er fyrir.
Hérna kemur smá kynning á starfsemi Hjálparkokka.
Hjálparkokkar aðstoða börn sem búa við fátækt með páskaegg, skógjafir, jólagjafir og afmælisgjafir. Markmiðið er að gleðja börnin og láta óskir þeirra rætast — óskir sem foreldrar hafa oft ekki tök á að uppfylla. ❤️
Hildur hóf starfið árið 2016 út frá eigin reynslu af fátækt sem einstæð tveggja barna móðir. Hugmyndin að óskalistunum kom frá elsta syni hennar. Samtökin voru formlega stofnuð árið 2020 og Hildur er formaður þeirra. Í stjórn sitja níu manns.
Starfið er án hagnaðarsjónarmiða og byggist alfarið á sjálfboðavinnu, styrkjum og frjálsum framlögum í formi gjafa og peninga. Með stuðningi samfélagsins hjálpa Hjálparkokkar fjölskyldum að skapa gleðistundir fyrir börnin sín.
Þessi tími verður blanda af þeim tveimur tímum sem ég er með alla fimmtudaga.
1 lota af kraftmikilli öndun
2 lotur af mildri öndun
Góða slökun og hugleiðslu í lokin
Við opnum athöfnina með því að drekka cacao frá Venezuela.
Fyrir þá sem það vilja.
En það hjálpar okkur að fara enn dýpra í önduninni.
Öndunin sjálf tekur uþb 35 mínútur en svo leiði ég þig í djúpa slökun með tíbeskum söngskálum.
Koma í þægilegum fötum.
Og með vatnsbrúsa
Mæli ég einnig með því að vera ekki búin að borða þunga máltíð fyrir öndunina og halda kaffi drykkju í lágmarki.
Ef þú ert að glíma við eitthvað af eftirfarandi og ætlar að koma þá endilega sendu á mig línu.
Hjarta og/eða æðavandamál.
Hár blóðþrýstingur
Saga um blóðtappa.
Flogaveiki eða flogaköst.
Hjarta áfall innan síðustu 5 ára
Nýlegar aðgerðir
Ólétta
Verður athöfnin haldin í sal Hugarafls Síðumúla 6 gengið er inn á vinstri hlið hússins.
MIKILVÆGT
Kostar þáttaka 6000 kr
Þið tryggið ykkur pláss með því að ganga frá greiðslu inn á 550825-0310
0517-26-000220
Skýring á millifærslu er Hjálparkokkar
A.T.H ef forföll eru boðuð og minna en 24 klst eru í viðburðinn þá er plássið ekki endurgreitt nema að það náist að selja það öðrum
12 pláss eru í boði.
Húsið er opið frá kl 17:15-17:30
Ef þig langar að koma en átt ekki peninga núna sendu mér línu og við finnum lausn á því.
Sendu endilega skilaboð fyrir frekari upplýsingar.
Vonast til að sjá þig
Gott væri að skrá sig á viðburðinn en einnig í gegnum þennan link
https://www.nirvanaondun.com/events/ondum-fyrir-godan-malstad-nirvana-og-hjalparkokkar