Opin hrekkjavökuæfing - öll velkomin

Opin hrekkjavökuæfing - öll velkomin

Skautahöllin í Laugardal, Múlavegur 1, 104 Reykjavík Directions

Sat Oct 31 2026 12:00

Íshokkískóli SR verður í sannkölluðum hrekkjavökugír laugardaginn 31. október kl. 12.00–12.45.

Öllum hressum krökkum á aldrinum 4–10 ára er boðið að koma og prófa íshokkí frítt. Krakkarnir eru hvattir til að mæta í hrekkjavökubúningum og/eða með andlitsmálningu.

Fálki, lukkudýr SR, mætir á svæðið og gefur öllum krökkunum íspinna.

Byrjað verður á léttum skautaæfingum og leikjum, en svo verða ljósin slökkt, diskóljósin gangsett, hræðileg tónlist sett í gang og hrekkjavökufjörið tekur við!

Öll velkomin! 👻🎃🏒