Opnunarviðburður Glóðar

Opnunarviðburður Glóðar

Gróska | Sykursalur, Bjargargata 1, 102 Reykjavík Directions

Tue 01.09.2026 12:00

Gjaldfrjálst reikniafl fyrir íslenska sprota, fyrirtæki og stofnanir

Flest okkar vinna nú þegar með tækni sem gæti gert margfalt meira ef hún hefði aðgang að auknu reikniafli — aflinu sem knýr tölvubúnað til að leysa stór og flókin verkefni. Því meira afl, því stærri og þyngri verkefni er hægt að leysa og því hraðar má byggja umfangsmiklar stafrænar vörur og þjónustu.

Á opnunarviðburði Glóðar kynnum við nýja þjónustu sem veitir íslenskum fyrirtækjum, sprotum, stofnunum og rannsóknarfólki aðgang að margfölduðu reikniafli. Farið verður yfir hverjir möguleikarnir eru, hverjar forsendur fyrir þátttöku eru, ásamt sýnidæmum frá íslenskum fyrirtækjum sem hafa nýtt sér aukið reikniafl í framþróun sinni.

Skráðu þig


Dagskrá

12:00 – 13:00

Hádegisverður og formleg opnun

Allir gestir koma saman í fyrsta sinn: sprotar, fyrirtæki, opinberar stofnanir og tæknifólk víðs vegar að af landinu. Hádegisverður í boði.

  • Opnunarávarp frá Vísindagörðum
  • EuroHPC AI Factories & Antennas
  • Kynning á Glóð

13:00 – 15:00

Vinnustofur í tveimur sölum

Þátttakendur skipta sér í tvær samhliða lotur, sniðnar að ólíkum hópum.

Fyrstu skrefin: Hvað getur Glóð gert fyrir þig?

Fer fram á íslensku

Tilgangur: að kynna Glóð fyrir litlum og meðalstórum fyrirtækjum og opinberum stofnunum, sýna fram á virði HPC, stórgagna og gervigreindar og kortleggja þarfir þátttakenda. Þrír hlutar, 30 mínútur hver.

  • Fyrsti hluti — Kynning og hugmyndafræði (30 mín): Inngangur og stutt þarfagreining, hagnýt dæmi (myndgreining, textamódel og tímaraðaspár) og yfirferð á þjónustupökkum Glóðar.
  • Annar hluti — Vinnustofa og hópavinna (30 mín): Þátttakendur kortleggja eigin verkefni á verkefnablaði við borð, með leiðbeinendum frá HR og Glóð á staðnum.
  • Þriðji hluti — Samantekt og næstu skref (30 mín): Innsýn leiðbeinenda, stuttar kynningar frá borðum og svarið við lokaspurningunni: „Hvað getur Glóð gert fyrir okkur?“

Lengra komin: Aðgangsleiðir og skölun

Fer fram á ensku

Fyrir sprota, fyrirtæki og stofnanir sem hafa þegar nýtt gervigreind og/eða HPC og vilja skala upp.

  • 13:00 – 13:30 Aðgangsleiðir EuroHPC AI Factories og dæmi um notkun Glóðarþjónustu
  • 13:30 – 14:00 LUMI AI Factory og dæmi um aðgangsleiðir
  • 14:00 – 14:20 Stutt hlé
  • 14:20 – 14:50 Valin dæmi frá íslenskum notendum Glóðar
  • 14:50 – 15:00 Spurningar og svör

15:00 – 17:00

Kokteill og tengslamyndun

Dagskrá lýkur með léttum veigum í Sykursalnum.