Opnunarviðburður nægjusams nóvember með Heimili heimsmarkmiðanna

Opnunarviðburður nægjusams nóvember með Heimili heimsmarkmiðanna

Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Directions

Thu Oct 29 2026 17:00

Opnunarhátíð, fimmtudaginn 29.október

Saman gegn sóun, Landvernd og Sorpa bjóða ykkur hjartanlega velkomin á opnunarviðburð Nægjusams nóvember, sem haldinn er í samstarfi við Heimili heimsmarkmiðanna í Hannesarholti.

Nóvember er einn neysluríkasti mánuður ársins með sínum svarta föstudegi, netmánudegi og degi einhleypra. Nægjusamur nóvember er hvatningarátak sem snýst um að hægja á neysluhraðanum, finna verðmæti í því sem við eigum nú þegar og leita leiða til að lifa í meiri sátt við náttúruna og nærumhverfi okkar. Þetta er mótsvar við neysluhyggju og hugmyndinni um að okkur vanti stöðugt eitthvað.

Á þessum opnunarviðburði ætlum við að kafa dýpra í kjarna átaksins og skoða hvernig við getum fundið valdeflinguna, jákvæðnina og gæðin í nægjusemi.

Í pallborði verður:

-Fulltrúi Landverndar sem heldur utan um nægjusaman nóvember.

-Fulltrúi frá hringrásarverkefni Sorpu, Góða hirðinum.

-og fulltrúi frá saman gegn sóun, hringrásarverkefni umhverfis og orkustofnunar.

Geturðu ekki mætt á staðinn til að taka þátt í skemmtilegum umræðum? Þú þarft ekki að missa alveg af því fundinum verður einnig streymt í beinni útsendingu á youtube.

Komið og fáið ykkur kaffibolla í Hannesarholti og takið þátt í að efla sjálfbærari og réttlátari framtíð.