Örpílagrímagöngur á aðventunni.
Hafnarfjarðarkirkja, Strandgata 51, 220 Hafnarfjörður Directions
Fri Nov 27 2026 14:00
Örpílagrímagöngur á aðventunni.
Samstarfsverkefni Hafnarfjarðarkirkju og Víðistaðakirkju.
Á aðventunni verður boðið upp á örpílagrímagöngur og fræðslu í Hafnarfjarðarkirkju. Þetta er kærkomið tækifæri til að staldra við í amstri aðventunnar, njóta kyrrðar, hreyfingar og samfélags. Boðið verður upp á fjórar samverur þar sem fléttað verður saman stuttum göngum um fallegt umhverfi Hafnarfjarðar, pílagrímafræðslu, kyrrðarbæn og biblíulegri íhugun. Gengið verður meðal annars um Hamarinn, meðfram sjávarsíðunni og um Hellisgerði. Fræðslan fer fram í Odda, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, bæði fyrir og eftir göngurnar.
Dagsetningar:
* Föstudagur 27. nóvember
* Föstudagur 4. desember
* Föstudagur 11. desember
* Föstudagur 18. desember
Tími: Kl. 14:00–15:30 Mæting: Oddi, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju. Þátttakendur eru hvattir til að klæða sig eftir veðri og mæta í góðum gönguskóm.
Fræðslan verður í umsjá sr. Sighvats, Bergþóru og Hjörleifs.
Verið hjartanlega velkomin til að eiga saman notalega stund á aðventunni, næra líkama og sál og finna kyrrð í amstri dagsins ♥️
Kirkjan
Prestar, starfsfólk og sóknarnefnd, saga kirkjunnar, gjaldskrá og útleiga á veislusal.