Öruggt skjól á Eskifirði - Búbbluboð

Öruggt skjól á Eskifirði - Búbbluboð

Forlagið útgáfa, Fiskislóð 39, 101 Reykjavík Directions

Mon Oct 19 2026 16:30

Búbblur og bækur!

Í tilefni útgáfu bókarinnar Öruggt skjól á Eskifirði eftir Ásu Marin verður boðið í búbblur í Bókabúð Forlagsins mánudaginn 19. október kl 17:00.

Höfundur les upp úr bókinni eftir sófaspjall með Regínu Ósk. Léttar veitingar verða í boði og bókin á sérstöku útgáfutilboði.

Við hlökkum til að sjá ykkur!

Um bókina:

Bráðskemmtileg, rómantísk aðventusaga. Dag einn er Kristínu nóg boðið: Vinnan og þriðja vaktin eru að ganga frá henni og hún leggur óvænt af stað austur á firði til að heimsækja góðan vin og hugsa sinn gang. Eiginmaðurinn vill ólmur fá hana aftur heim en fjallmyndarlegur Eskfirðingur skýtur upp kollinum og flækir málin.

Performers