Philadelphia - Alþjóðlegi alnæmisdagurinn
Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Directions
Tue Dec 01 2026 19:00
Alþjóðlegi alnæmisdagurinn er haldinn hátíðlegur 1. desember ár hvert, um heim allan.
Í tilefni dagsins í ár sýna HIV-Ísland og Bíó Paradís tímamótakvikmyndina Philadelphia. Myndin vakti mikla athygli á sínum tíma og var sýnd í Stjörnubíó árið 1994 mitt í algleymi og sársauka alnæmisáranna.
Myndin er sýnd kl 19:00 og í kjölfarið verður boðið upp á léttar veitingar í anddyri Bíó Paradís.
Andrew Beckett (Tom Hanks) er farsæll lögfræðingur sem missir vinnuna eftir að yfirmenn hans komast að því að hann er með alnæmi. Sannfærður um að honum hafi verið sagt upp vegna fordóma ákveður hann að leita réttar síns og fær ólíklegan bandamann sér til aðstoðar. Áhrifamikil saga um fordóma, réttlæti og mannlega reisn.