Prjónagleði með Textíl Barnum

Prjónagleði með Textíl Barnum

Mosfellsbær public library, Þverholt 2, 270 Mosfellsbær Directions

Thu Oct 22 2026 16:30

Ertu að taka þátt í árlegu leyni-sjalasamprjóni Stephen West?

Eða ertu með eitthvað annað skemmtilegt á prjónunum og langar að hitta aðra prjónara?

Til að fanga lita- og sköpunargleðina og skoða möguleika á endurnýtingu býður Hrafnhildur hjá Textíl Barnum til prjónastundar á Bókasafni Mosfellsbæjar fimmtudaginn 22. október.

🔍 Leynisamprjónið hófst formlega 1. október. Það fer þannig fram að ný vísbending með hluta af uppskriftinni er gefin út vikulega í fjórar vikur. Þátttakendur vita því ekki í upphafi hvernig lokaútkoma sjalsins verður. Í prjónastundinni gefst tækifæri til að sjá hvernig verkefnunum miðar og bera saman ólíkar litasamsetningar.

💜 Textíl Barinn er hönnunarstúdíó þar sem tvíeykið Hildigunnur og Hrafnhildur standa vaktina. Þær sérhæfa sig í því að gefa áður elskuðum textíl nýtt líf með endurvinnslu og endurhönnun. Samprjónssjalið er einmitt í átta litum í ár og henta afgangar því fullkomlega í verkefnið.