RADDIR UNGS FÓLKS

RADDIR UNGS FÓLKS

Íþróttamiðstöðin í Laugardal, Engjavegur 6 104, 104 Reykjavík Directions

Thu Nov 26 2026 16:00

Ungt fólk hefur talað – hvað ætlum við að gera?

ÍSÍ og UMFÍ bjóða til útgáfuhófs skýrslunnar Raddir ungs fólks.

Vorið 2026 voru haldnir átta samráðsfundir víðs vegar um landið með stuðningi Erasmus+. Þar settust ungmenni á aldrinum 15–25 ára við sama borð og fulltrúar íþróttahreyfingarinnar, sveitarfélaga, skóla og stjórnvalda. Þau ræddu reynslu sína af íþrótta- og æskulýðsstarfi og hvað þarf að breytast. Kostnaður, gæði þjálfunar, æfingatímar og ótímabær áhersla á afrek voru meðal þess sem brann á þeim.

Útgáfuhófið verður ekki hefðbundinn kynningarfundur heldur lifandi samtal þar sem unga fólkið sjálft er í forgrunni.

Á dagskrá eru meðal annars:

➤ helstu niðurstöður skýrslunnar

➤ samtal við ungmenni sem tóku þátt í verkefninu

➤ Ólafur Stefánsson segir frá upplifun sinni af verkefninu

➤ pallborð fulltrúa ungs fólks, íþróttahreyfingarinnar, sveitarfélaga og stjórnvalda um spurninguna: Hvað ætlum við að gera við það sem unga fólkið hefur sagt okkur?

📍 Íþróttamiðstöðin í Laugardal, Engjavegur 6, 3. hæð

📅 Fimmtudaginn 26. nóvember kl. 16:00–17:30

💻 Einnig í streymi. Hlekkur verður sendur skráðum þátttakendum.

Skráning fyrir 24. nóvember: https://forms.gle/4pxkozfW1yoYCZPB7

Við spurðum. Við hlustum. Við bregðumst við.

Hlökkum til að sjá þig!