Rökkurró í Lystigarðinum á Akureyrarvöku 2026
Akureyri Botanical Garden, Eyrarlandsvegur 30, 600 Akureyri Directions
Fri 28.08.2026 20:40
Rökkurró í Lystigarðinum á Akureyrarvöku 2026
Velkomin í rómantíska stemningu, dans og ljúfa tóna í upplýstum Lystigarði á Rökkurró.
Setningarhátíð Akureyrarvöku fer fram í Lystigarðinum á Akureyri föstudagskvöldið 28. ágúst og hefst dagskrá formlega með ávarpi bæjarstjóra kl. 21:00.
Gítarleikarinn Ivan Mendez gefur tóninn stuttu fyrir viðburð en Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar setur hátíðina og fer fram kynning á dagskrá Akureyrarvöku.
Að ávarpi bæjarstjóra loknu mun Páll frá Húsafelli spila á steinhörpu við undirleik Hilmars Arnar Agnarsonar áður en dansarar frá listdansskóla Steps Dancecenter sýna dansverkið FLOW. Eftir það taka flæðir djassinn úr höndum og hljóðfærum THE Tríó sem leiða gesti inn í nóttina.
Áætlað er að dagskrá ljúki um kl. 22:00.
Samhliða Rökkurró er opnun á sýningu Charlotte Søeborg, Út í garð, í Lystigarðinum þetta kvöld. Sýningin teygir sig frá Listasafninu á Akureyri og alla leið upp í garð. Boðið verður upp á leiðsögn um sýninguna frá Charlotte sjálfri að dagskrá lokinni þar sem fágæt skordýr úr málmi leynast meðal trjáa og blóma garðsins. Opnun á þeim hluta sýningarinnar sem er í Listasafninu á Akureyri er laugardaginn 29. ágúst klukkan 15:00.
Kynnið ykkur einstaklega fjölbreytta dagskrá Akureyrarvöku á akureyrarvaka.is
Performers
-
Listasafnið á Akureyri / Akureyri Art Museumis the Akureyri Art Museum http://www.listak.is
-
THE TríóJazzy tríó á Norðurlandi
Erla Mist - söngur
Hallgrímur Jónas - gítar
Tómas Leó - bassi
-
AkureyrarvakaThe Anniversary of Akureyri Municipality is celebrated annually on the weekend closest to the day of establishment which is the 29th of August. It´s a celebration including cultural events like exhibitions, visual art, music, science and so on.
-
RÖKKURRÓ - Vigdís Halla Birgisdóttir
performing at the festival