Rólegt yoga 60+
Yogavin, Grensásvegur 16, 108 Reykjavík Directions
Mon 07.09.2026 10:30
RÓLEGT YOGA 60 +
Hefst 7. sept
KENNARAR Sólrún Kamban og Ásta Arnardóttir
KENNT mán og mið kl. 10.30 (75 mín)
Tilvalið er yoga nidra kl. 12.00 í framhaldi af tímanum (40 mín)
Testund í testofu frá 10.00 njótum samverunnar, boðið uppá ljúffengt jurtate
Haustönn 7. sept - 12. des
VERÐ 57.900 - innifalið opið kort *
Opið kort gildir í alla opna tíma á stundaskrá
Bjóðum einnig uppá
1 mánuð 19.900
2 mánuðir 36.900
10 tíma klippikort 25.900
* velkomið að skipta greiðslu
Rólegt yoga fyrir fólk á besta aldri. Lögð er áherslu á heildræna þjálfun líkama og huga sem skapar jafnvægi og léttir lund. Yoga er áhrifarík leið til að liðka og styrkja stoðkerfi, hlúa að innri líffærum, skapa jafnvægi í taugakerfi og jákvæðni í daglegu lífi. Meðvituð öndun og öndunaræfingar sem auka orku og skapa ró. Kærleiksrík samvera í góðum hópi.
Sólrún W. Kamban kennir yin yoga, yoga nidra og vinyasa. Hún lauk yogakennaranámi frá Yogavin 2020. Yoga nidra kennaranámi hjá Matsyandra 2023. Hún hefur stundað yoga í mörg ár og nýtur þess að hlúa að líkama og sál með yogaiðkun og heilbrigðum lífsstíl. Sólrún er hjúkrunarfræðingur og hefur kennt í Yogavin frá 2020.
Ásta Arnardóttir er eigandi Yogavin og hefur kennt yoga frá 1999, yogakennaranám frá 2010 og kyrrðarvökur frá 2011. Hún er með bakgrunn í leiklist og hefur haldið fjölbreytt námskeið í yoga, hugleiðslu, leiklist, spuna og skapandi lífstíl síðastliðin 35 ár. Hún er stofnfélagi í Félagi um vipassana hugleiðslu 2011 og hefur leitt kyrrðarvökur á vegum félagsins frá stofnun þess. Ásta kennir vinyasa, yin yoga, rólegt yoga, yoga nidra djúpslökun, núvitund hugleiðslu, tónheilun, námskeið og yogakennarnám þ.á.m. 200 tíma yogakennaranám og 60 tíma kennaranám í Yin yoga & núvitund.
SKRÁNING OG NÁNARI UPPLÝSINGAR
www.yogavin.is
yoga@yogavin.is