Rötun og GPS – námskeið Fjallafjörs í Reykjavík

Rötun og GPS – námskeið Fjallafjörs í Reykjavík

Reykjavik, , Reykjavik Directions

Wed Oct 07 2026 18:00

REYKJAVÍK · 7. og 8. október 2026

Kl. 18:00–22:00 bæði kvöld. Námskeiðið nær yfir bæði kvöldin.

Viltu verða öruggari í rötun og nýta GPS-tækið þitt betur í útivist?

Á tveggja kvölda námskeiði Fjallafjörs lærir þú að vinna með ferla, flytja þá í GPS-tækið og nota tækið til að rata á ferðinni og til baka eftir skráðum ferli.

Við förum meðal annars yfir:

• Grunnatriði rötunar og kortalestur

• Stefnur og staðsetningu

• Helstu stillingar og valmyndir GPS-tækja

• Vinnslu og notkun ferla

• Flutning GPS-gagna milli tölvu og tækis

• Hagnýt forrit og verklegar æfingar

Leiðbeinandi: Guðmundur Örn Sverrisson, fararstjóri hjá Fjallafjöri.

Verð: 24.900 kr. fyrir námskeiðið.

Hámark: 12 þátttakendur.

Hafðu GPS-tæki meðferðis. Mælt er með Garmin GPSMAP 62 eða nýrri. Áttavitakennsla er ekki hluti af þessu námskeiði.

Skráning og nánari upplýsingar: https://www.fjallafjor.is/rotun

Veldu Reykjavík, 7. og 8. október, við skráningu.

Performers