Safnahelgi í Víkingaheimum

Safnahelgi í Víkingaheimum

Víkingaheimar, Víkingabraut 1, 260 Reykjanesbær Directions

Sun Oct 18 2026 10:00

Opið frá kl. 10:00 - 16:00 laugardag og sunnudag.

Víkingabraut 1, 260 Reykjanesbæ.

VÍKINGAHEIMAR taka þátt í Safnahelgi og opna dyr sínar fyrir gestum án endurgjalds dagana 17. og 18. október.

Gestum gefst einstakt tækifæri til að upplifa víkingaarfleifð Íslands. Í hjarta safnsins er Íslendingur, fullsmíðað víkingaskip sem sigldi yfir Atlantshafið, ásamt merkum fornminjum og frásögnum sem tengja okkur við sögu og menningu víkinganna.

Frítt inn og heitt á könnunni.

Dagsetning: 17. og 18. október

Tími: Kl. 10:00-16:00

Staðsetning: VÍKINGAHEIMAR, Víkingabraut 1, 260 Reykjanesbæ

Safnahelgin er kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur, vini og alla áhugasama til að skoða safnið, kynnast víkingaarfi okkar og njóta notalegrar stundar í sögulegu umhverfi.

Verið hjartanlega velkomin í VÍKINGAHEIMA!