Salka

Salka

Iðnó, Vonarstræti 3, 101 Reykjavík Directions

Sun Nov 29 2026 20:00

Salka

Salka er brakandi fersk stórsveit skipuð einvalaliði hljóðfæraleikara sem leggur áherslu á líflegan flutning og fjölbreytta tónlist.

Á þessum fyrstu tónleikum sveitarinnar verður spiluð klassísk stórsveitartónlist í bland við nýrri verk, sum hver eftir og/eða útsett af hljómsveitarmeðlimum. Tónleikagestir munu eiga erfitt með að sitja hreyfingarlausir og mega stuðpinnar höfuðborgarsvæðisins (og þó víðar væri leitað) alls ekki missa af þessu.