Salsabíó & Salsaball
Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Directions
Wed 09.09.2026 19:00
Sýning myndarinnar Cuban Fury og Salsa Social fram á kvöld.
Kæru vinir.
Við ætlum að koma saman og njóta sprenghlægilegu gamanmyndarinnar Cuban Fury sem fjallar um hinn fyrrverandi salsadansara Bruce Garrett, sem hefur fyrir löngu lagt dansskóna á hilluna. Þegar ástin bankar óvænt upp á neyðist hann hins vegar til að dusta rykið af gömlu salsatöktunum og stíga aftur á dansgólfið.
Myndin er stútfull af salsa, húmor, rómantík og skemmtilegum persónum – tilvalin mynd fyrir okkur sem þekkjum gleðina, dramatíkina og örlitla klikkunina sem fylgir salsaheiminum. 😄💃🕺
Að sýningu lokinni verður salsa social fram eftir kvöldi, þannig að við getum sjálf stigið á dansgólfið og haldið fjörinu áfram.
Komum saman, hlæjum og njótum góðrar kvöldstundar í frábærum félagsskap!
Verð er 3.500kr fyrir bíó og danskvöld. Vinsamlegast millifærið á 0370-26-052210, 141274-3929 og merkið "bíó" og það mun bíða miði eða miðar (það sést á upphæð ef þið viljið fleiri en einn) og endilega merkja going og hvetjið fleiri til að mæta.
Viðburðurinn skipulagður af:
Latinos.is - Einn staður fyrir alla latino viðburði á Íslandi!