Scott McLemore‘s Multiverse - Múlinn jazzklúbbur
Harpa | Björtuloft, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions
Wed Oct 21 2026 20:00
Andrés Þór Gunnlaugsson, gítar
Hilmar Jensson, gítar
Nico Moreaux, bassi
Scott McLemore, trommur
Multiverse er kvartett trommuleikarans og tónskáldsins Scotts McLemore. Með honum leika Andrés Þór á gítar og pedal steel, Hilmar Jensson á gítar og Nicolas Moreaux á kontrabassa. Efnisskráin er öll frumsamin, laglínudrifin tónlist sem gefur spunanum lausan tauminn. Gítararnir tveir kallast á og vefa saman ólíka hljóðheima, og sveitin fer sínar eigin leiðir hverju sinni. Undanfarið hefur Andrés Þór lagt sífellt meiri áherslu á pedal steel-gítarinn, sem ljær tónlistinni draumkenndan og síbreytilegan blæ og teygir hljóm sveitarinnar í nýjar áttir.