Skáldskapur, sögur og notaleg aðventustemning á Skáld!

Skáldskapur, sögur og notaleg aðventustemning á Skáld!

Skáld Akureyri, Hafnarstræti 80, 600 Akureyri Directions

Sat Dec 05 2026 14:00

Laugardaginn 5. desember kl. 14:00 bjóðum við til sérstakrar menningarstundar á Skáld Akureyri þar sem saga, skáldskapur og ljóðlist mætast í hlýlegri aðventustemningu.

Á dagskrá er opnun sýningar um einn litríkasta persónuleika Akureyrar, Rögnvald kammerráð, ásamt ljóðalestri þriggja skálda úr nýútgefnum verkum sínum.

✨ RÖGNVALDUR KAMMERRÁÐ – GOÐSÖGN AKUREYRAR

Við opnum sýningu um Rögnvald Rögnvaldsson kammerráð, lífskúnstner, hagyrðing og goðsögn í lifanda lífi í skáldabænum Akureyri.

Rögnvaldur var gæslumaður bæjarklósettanna undir kirkjutröppunum og hafði þar sinn eigin kontór sem hann nefndi Skáldalæk. Þar varð til einstakur samkomustaður skáldhneigðra menntaskólanema, litríkra bóhema og Akureyrarskáldanna sjálfra.

Á Skáldalæk blómstraði mannlífið, húmorinn og skáldskapurinn.

Við opnun sýningarinnar mun Ragnar Ingi Aðalsteinsson, skáld og ritstjóri Stuðlabergs, segja sögu Rögnvaldar. Við sama tækifæri mun hann ásamt afkomendum Rögnvaldar afhenda merkilega gestabók frá Skáldalæk, þar sem fjölmargir gestir skildu eftir orð sín, vísur og skáldskap.

📖 ÞRJÚ SKÁLD Á SKÁLD – LJÓÐALESTUR Í AÐVENTUNNI

Þrjú ljóðskáld leggja leið sína norður og lesa úr nýútgefnum verkum sínum sem hafa vakið athygli í jólabókaflóði ársins.

Fram koma:

•Védís Eva Guðmundsdóttir – les úr Brotnum línum.

• Melkorka Ólafsdóttir – les úr Hverfu.

• Ragnheiður Harpa Leifsdóttir – les úr Deig, sem hlaut

bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2026.

Að upplestri loknum gefst gestum tækifæri til að hitta höfundana og kaupa áritaðar bækur á sérstökum tilboðskjörum.

🎄 Eigum saman notalega stund á Skáld í upphafi aðventunnar!

Komdu og njóttu skemmtilegra sagna úr menningarlífi Akureyrar, hlýddu á fallegan skáldskap og finndu jafnvel hina fullkomnu jólagjöf.

📅 Laugardagur 5. desember 2026

🕑 Kl. 14:00

📍 Skáld Akureyri – Curio Collection by Hilton

Ljóðaviðburðurinn er styrktur af Skáld Akureyri Curio Collection, með framlagi úr Menningarsjóði Akureyrarbæjar.

Verið hjartanlega velkomin á Skáld! ✨