Sögustund og 100 ára afmæli Bangsímon!

Sögustund og 100 ára afmæli Bangsímon!

Bókasafn Reykjanesbæjar, Stapasafn, Dalsbraut 11, 260 Njarðvík Directions

Wed Oct 14 2026 16:30

Bangsímon á 100 ára afmæli og því ætlum við að halda upp á það með alvöru bangsa-sögustund! 💛

Halla Karen les upp úr sögunni um Bangsímon og félaga hans og við eigum saman dásamlega stund í heimi þeirra í Hundraðekruskógi.

Þar sem alþjóðlegi bangsadagurinn er líka handan við hornið, 27. október, hvetjum við öll börn til að taka uppáhaldsbangsann sinn með í afmælisveisluna. 🧸

Þetta verður alvöru afmælisveisla, með afmælisköku, djúsi og kaffi fyrir gesti.

Viðburðurinn verður miðvikudaginn 14. október kl. 16:30 í Stapasafni.

Öll börn og bangsar velkomin, að kostnaðarlausu!💛🧸