Sögustund - Öll í hóp á einum sóp

Sögustund - Öll í hóp á einum sóp

Mosfellsbær public library, Þverholt 2, 270 Mosfellsbær Directions

Tue Oct 20 2026 16:45

Í sögustund októbermánaðar ætlum við að lesa bókina Öll í hóp á einum sóp eftir Juliu Donaldson og Axel Scheffler. Sigríður Ásta Árnadóttir þýddi bókina.

Norn og köttur fljúga saman á töfrasóp um loftin blá - og þar er nóg pláss fyrir vinalegan hund, frosk og fugl sem vilja vera með. En þegar glorhungraður dreki birtist skyndilega verða nornin og vinir hennar að grípa til sinna ráða.

Öll velkomin!